Monday, July 11, 2005

náttúran

Systur góðar ..erum við samtaka á egglosi?

Nýr titill vegna einnar áskorunnar, og tveggja hestaferða um helgina.

Björg í Hvammi lánaði mér meri, hnakkinn sinn og hjálm, Kristjana lánaði mér regnbuxur og skálmar ..þar með sat ég fast og þeystits um biskupstungurnar á merinni Muggu.

Svo aftur í gær,þeystist ég upp á Gullfoss með Villu og Ingu J ónu ..er eiginlega búin að fá merina Lísu gefins. Hún er hvít og falleg. ..Guðveig, nú verðum við að fara byggja hesthús.

Já þvílik hestamennska, ég varð bara að forfalla mig úr KB banka golfmótinu " Össs mar" ..eins og Martha systir segir.

Svo er ég á svo þvílikum bullandi séns að það væri bara svekkjandi fyrir ykkur að lesa um það ..getur einhver stolið fyrir mig númerarúllunni úr kjötborðinu í Hagkaup? ..eða bara ísbúðinni í álfheimum. Gæti stofnað minn eigin bacheolrette þátt hér í sveitinni.
muohahahahah

3 Comments:

Blogger sonja said...

Ég veit allavega að ég er ekki á egglosi.. veit ekki með rest!

2:53 AM  
Blogger Hanna Kristin said...

þú verður nú að vanda valið, höfum við kost á að vera með símakosningu um hinn heppna???

11:29 AM  
Anonymous Anonymous said...

Sko passaðu þig bara að nefna ekki Guðveigu við sjensana ...það er ekki gott. Var rétt búin að landa gullfallegum hæng nú um helgina, en þegar hann frétti af konan í Öxnadalnum væri systir mín fór hann ýlfrandi úr landi ..hef ekki heyrt í honum síðan. Hei,, hallo .

12:05 PM  

Post a Comment

<< Home