Wednesday, June 22, 2005

Midnight OPEN í Hrunamannahrepp


Eftir 10 ára hlé hef ég burstað af golfskónum mínum, SeJjitt hvað þeir eru blebbalegir ..og vondir.
Á föstudaginn kemur verður haldið midnight open á flúðavelli og þá mæti ég í gúmmískónum mínum með gömlu tommy armour kylfurnar mínar, bleika golfkúlu, bleikt Tí og húbba búbba. Það ríkir mikill stuðningur meðal samstarfsfólks og verð ég með kylfusveinku með mér, ekki af lakari kantinum. Hún Inga Jóna heitasta innfædda gellan í sveitinni og fyrrverandi framkvæmdastjóri hgst Laugarási veit sko alveg hvenær á að rétta mér 20 ára Spalding 3 tré.

Það verður andlegt prepp á útlaganum stuttu áður, þar sem ég treysti á að fá bleksterkt kaffi lagað af manni sem drekkur ekki kaffi. Strákar, er hægt að treysta á það?

Veðbankinn er opin frá og með núna.

Pant ekki fá rigningu, ég á ekki pollagalla.

3 Comments:

Blogger robert mar said...

já, það verður gaman af því að vera vitni og vera í holli með svona plebba. ég verð nátturulga með "lookið" alveg upp á tíu en það verður að koma í ljós með spilamennskuna upp á hvað hún verður...

1:41 AM  
Blogger Kristín Lilja said...

ehh sorry robert, mitt holl var fullt, þú þarft að vera með ennþá meiri blebbum. Ég verð víst að spila með einhverjum töffurum með 9 í forgjöf. úps, best að hafa maskarann og púðrið klárt.

11:12 AM  
Blogger sonja said...

Bara að þeir séu úr KB banka!

9:25 PM  

Post a Comment

<< Home