Thursday, May 26, 2005

Tangó



Brá mér út á Alþjóðahús í gærkveldi, rétt til að fá mér eitt rauðvínsglas fyrir háttinn. Þar sem ég var að gramsa í blaðarekkanum vatt sér upp að mér karlmaður af erlendu breki brotinn og bauð mér upp í dans: "dont worry, I will leed you all the way" , ég greip í hendur hans án þessa að svara og svo dönsðum við tangó fram á rauða nótt,kvöldsólin glampaði fallega á demantahálsmeni mínu og neistar snörkuðu, það flaug í gegnum huga mér, hversu ömurlegt það væri að eiga mann sem kynni ekki að dansa.

BREMS okei þá, verð að skemma söguna aðeins ..herran var um 90 ára gamall og þótt hann dansaði mjög vel miðað við aldur þá var ég bara hrædd við að setja ökkla mína á herðar hans og dýfa, það er nefnilega ekkert kynþokkafullt við að fá samfall á hrygg á dansgólfinu.
En allt í rétta átt!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home