Monday, May 23, 2005

brúðkaupið

þeirra Dunnu og Gunna var alveg sérstaklega fallegt. Ég og við systkynin skemmtum okkur konunglega, frábærlega skemmtilegt fólk Gunna megin sem við kynntumst T.Eitur, St.Urla og fleiri. Við bíðum spenntar eftir næsta partíi memð þeim.

Þrátt fyrir marga myndarlega suðurnesjabolta átti lokadansinn Ingi Björn bróðir, sveiflaði systur sinni bara helvíti vel undir spili Rúnna Júl.

þynnkan í morgun (eða ok í hádeginu) kom ekki í veg fyrir að við Guðveig og Óli köttur keyrðum norður og skveruðum upp fjögurra rétta máltíð fyrir klukkan átta:
heitsoðinn svartfugl með hlynssýrops eplasalati, rjómapiparrótasósu og krækiberja vinegarette
Heil humar með hvítlauk og sítrónu á salatbeði
Lambafille með innbakaðri kartöflumús og Öxnadalsrauðvínssósu
og Frönsk súkkulaðikaka tejzinel.

Á morgun ætlum ég og Guðveig í hringferð ;-) ..svona rétt til að rifja upp örnefni, sýslumörk ofl

0 Comments:

Post a Comment

<< Home