Taktu helvítis styttuna
Eftir vel heppnað réttarlækningapróf í morgun ræsti ég skræpurnar í thermal bað. Sonja var fyrst að hafa sig til en Guðveigu þurfti að lofa dobbúl expresso til að hún velti sér frammúr.
3 sinnum dobbúl expresso síðar vorum 3 systur í heitu ungversku baði, síðan víxlbaði heitt-kalt-heitt-kalt-heitt-kalt ..ahhh enda á köldu, 6 stífar rassakinnar og 6 stinn brjóst trítluðu upp á THAI-nuddstofu , þar fengu G&S ótrúlegasta herbalnudd í heimi. Þær urðu nýjar konur á eftir, í alvörunni. Ég hef ekki getað haldið uppi eðlilegum samræðum við þær síðan, Guðveig talar ítölsku og Sonja tungum.
Smokkfiska, kræklinga,tatar veisla á hinum andalúsíska veitingastað Fandango gaf vel í bensíngjöfina, áður en ég vissi af vorum við í hláturskast í litlum bæ sem heitir Hortobagy, aðhlátursefnið var sígaunakall sem vildi endilega selja Sonju stóra illa útskorna styttu af Páli postula sem hann kallaði jesú, Hann sagði jesú aðeins kosta 13 þúsund íslenskar, við löbbuðum í burtu en hann kallaði OK á 10 þús, ok 8 þúsund, þú færð hana á 5 þúsund. "ok jesús for 3 thousand" ...svo HEY , KOMDU AFTUR OG LOSAÐU MIG VIÐ HELVÍTIS JESÚS STYTTUNA Á TVÖ ÞÚSUND.
Sonja dró upp veskið og málið var dautt.
Það er komið kvöld, Tokaj kampavín er komið í glös og gúllassúpan bullar.
Systrunum eru allir vegir færir.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home