Tuesday, November 25, 2008

draumaráðning óskast

Áður en ég sofnaði fór ég ofaní grænan dal, komst ekki lengra, sofnaði strax.
Mig dreymi nýgræðlinga, þeir uxu meðan ég horfði á þá, eins og maður sér spilað hratt í nátturulífsmynd.
Blöðin opnast hægt og fallega.
Margar litlar fallega grænar plöntur , ekki ósvipað þessari hér. Svo var einhver þarna í draumnum sem sagði "nei það er ekkert að marka þetta" ,þá sagði ég,
"horfðu bara á plöntuna og sjáðu, hún er að vaxa"
Svo setti ég nokkrar plöntur á höfuðið á mér og þær bara uxu og uxu litlu skinnin. Ég bara réð ekkert við þennan vöxt en hafði mjög gaman af og lék mér að þessu.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home