Sunday, May 14, 2006

ekki beinni konu út sigandi

Ljúfa helgin,
gerði mér lítið fyrir og skráði mig í Golfklúbb Akureyrar ..og mér finnst ég vera mjög mikil pæja eftir það (var nú varla á bætandi fyrir)
jæja, hrifsaði með í leiðinni nýjan léttann burðarpoka (og æfingakúluhaldara og tínara)
Völlurinn er reyndar ekki opnaður ennþá, þannig að ég brunaði upp í Öxnadal og lagði undir mig túnin á Hálsi, en þar er einmitt verið að opna þann glæsilega veitingastað "Halastjarna" þriðja sumarið í röð við mikla ánægju norðlendinga ...sjá www.halastjarna.com

Eftir að hafa djöbblast hressilega út á túni með kylfur og prik, þá sagði Guðveig mér að ég væri ofvirk .. og hefði alltaf verið það og mitt "annað sjálf" væri Maggi skeving.
..og ég fór í alvöru að pæla hvort ég væri ekki bara kannski ofvirk ..og já , ég hef aldrei verið ofvirkari en nú, og aldrei liðið betur!!!
Það er semsagt uppgötvun helgarinnar að það hentar mér mjög vel að vera ofvirk.
og nú er ég bara kölluð "íþróttaálfurinn" ...er ekki alveg búin að analísa hvernig ég fíla það.

Svo hennti ég mér í fjallgöngu að Þverbrekkuvatni og Hraunsvatni ..með mér för var Unnar Bachmann, við vorum bæði með málræpu alla leiðina og stofnuðum
Udevistar-Klubben, Unnar&Kristín eða UK
Svo borðuðum við glæsimáltið með Sonju og Pavle í forsetaherbergi Halastjörnu undir grammófónsmúkkík.

...á dagsskra útivistarklúbbsins í dag var svo gott langhlaup með 8 hraðabreytingum að hætti Unnars en morgunarmbeygjurnar voru gerðar á bökkum Þelamerkurlaugar sem er sjóðheit og ekki hægt að synda í.

Í lokin, það er ekki hægt að kíkja út á næturlífið lengur, glæsikonu eins og mér er ekki út sigandi fyrir slefandi allraþjóða hundum:-)

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hae min kaera
Verdurdu nokkud i Reykjavik um helgina eda tha naestu?
Agusta

5:54 PM  
Blogger Hanna Kristin said...

ertu geðveikt upptekin i byrjun júní 8-17.?? Kem í smá heimsókn til islands og gaman væri að hafa hitting?

9:26 PM  
Anonymous Anonymous said...

Like all Icelandic bloglogs, I do not understand one single thing.
You really should upload pictures.
kveðja Daan.

5:40 PM  
Anonymous Anonymous said...

jæja... er ekk kominn tími á smá blogg um ekkineitt?

12:33 PM  

Post a Comment

<< Home